Landssambönd heyrnarlausra á Norðurlöndum

Norðurlandaráð heyrnarlausra (DNR)

Norðurlandaráð heyrnarlausra var stofnað árið 1907 þegar félög heyrnarlausra í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð héldu fyrstu norrænu ráðstefnuna um málefni heyrnarlausra og mállausra í Kaupmannahöfn. Í fyrstu voru nýju samtökin kölluð Norræna samvinnustofnunin og starfið var heldur tilviljanakennt en frá og með 1950 varð samvinnan skipulagðari. Árið 1972 var nafni samtakanna breytt í Norðurlandaráð heyrnarlausra, DNR.

Hvaða lönd eiga fulltrúa í ráðinu?
Samtök heyrnarlausra í Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Íslandi, Noregi og Svíþjóð eiga fulltrúa í Norðurlandaráði heyrnarlausra. Hvert land hefur tvo fulltrúa, formann félagsins og einn úr stjórn félagsins. Norðurlandaráð heyrnarlausra fundar tvisvar á ári.

Hvað er Norðurlandaráð heyrnarlausra?
Norðurlandaráð heyrnarlausra er ráð sem vinnur að því að heyrnarlausir fái sömu réttindi og tækifæri og aðrir íbúar Norðurlandanna.

Hvert er hlutverk Norðurlandaráðs heyrnarlausra?
Mikilvægustu verkefni Norðurlandaráðs heyrnarlausra eru eftirfarandi:

  • að táknmál verði opinberlega viðurkennt sem móðurmál heyrnarlausra.
    að skiptast á upplýsingum um þróun og breytingar á högum heyrnarlausra og stöðu þeirra í aðildarlöndunum.
  • að skipuleggja ráðstefnur þar sem hægt er að deila reynslu af táknmáli, menntun og félagslegum vandamálum.
  • að bregðast við sameiginlegum áhyggjuefnum.

Á síðustu árum hefur aðstoð við heyrnarlausa í þróunarríkjunum aukist til muna. Flest aðildarríkin sjá um ýmis verkefni í öðrum heimshlutum eins og Afríku og Suður-Ameríku sem stuðla að því að stofna og styrkja samtök heyrnarlausra þar í landi. Búðir fyrir börn, ungt fólk og ellilífeyrisþega og aðrir atburðir eru einnig skipulagðir af Norðurlandaráði heyrnarlausra.

Skipulagning
Hver aðildarþjóð fer með formennsku í Norðurlandaráði heyrnarlausra í fjögur ár í senn. Þjóðin sem fer með formennsku tilnefnir formann og ritara samtakanna og sér um að senda fundargerðir og mikilvæg skjöl eftir fundi ráðsins auk þess að sjá um að opinber bréf séu send til stofnana og annarra sem samtökin hafa ákveðið að hafa samband við.

DNR Aðildarfélög

DNR Meðlimar